Arnbjörg í Marlborough skólanum skrifar. Í dag heimsótti ég Niitsitapi Learning Center sem er stórmerkilegur skóli. Hann er fyrir börn frumbyggja (3-7 ára) og hannaður út frá menningu þeirra og er eini skólinn í Kanada þar sem menningu frumbyggja er gert hátt undir höfði. Eins og hefur komið fram bæði hjá Brynhildi og Ástu er loksins verið að viðurkenna menningu frumbyggja og reyna að bæta fyrir það sem liðið er. Á næsta ári kemur t.d. út ný námskrá og þar er, í fyrsta skipti, fjallað um menningu frumbyggja og mikilvægi þess að hún fái að njóta sín. Þegar komið er að skólanum eru tákn frumbyggja yfir anddyrinu, björn úr graníti tekur á móti fólki þegar það kemur inn í anddyrið og þegar komið er inn í skólann tekur frumbyggi í fullum skrúða á móti manni. Um alla ganga hanga föt og annað sem tilheyrir menningu frumbyggja. Einnig eru lokaðir glerskápar undir verðmætustu hlutina. Skólastjórinn sem er af ættum frumbyggja sagði mér að það sé enginn skóli í Calgary með jafn háa tryggingu enda mikil verðmæti þarna inni um allt. Eitt herbergið í skólanum er eins og skólastofur frumbyggjanna voru og annað er herbergi öldunganna. Kennslan í Niitsitapi er heildstæð þar sem áhersla er á að námið næri hugann, hjartað, andann og líkamann ásamt því að heiðra fjölbreytileika menningar, tungumála og þess hvernig frumbyggjar öðlast þekkingu og læra. Öldungunum er gert hátt undir höfði og eru þeir virkir þátttakendur í skólastarfinu. Þeir komu einnig að hönnun skólans. Byggingin að innan er eins og myndin hér fyrir neðan. Grænu hlutarnir eru skólastofurnar. Í miðjunni er samkomustaður og þar eru gluggar sem vísa þangað sem sólin kemur upp og sest, bæði á sumrin og veturna. Í gegnum allan skólann eru línur í gólfinu eins og sést á myndinni. Það er sérstakt herbergi fyrir foreldra og ættingja þar sem er alltaf fullur ísskápur af mat, kassi með fötum sem má taka, notaleg húsgögn og yfirleitt er herbergið fullt af fólki. Með þessu móti tengjast fjölskyldurnar innbyrgðis og tengslin við skólann styrkjast en flestir aðstandendur nemenda eiga vondar minningar af sinni skólagöngu. Þegar skólinn hóf störf var ákveðið að gera rannsókn á því hvernig til tækist og fékk ég að vera viðstödd þegar niðurstöður voru kynntar og voru þær mjög góðar, svo góðar að fólk táraðist. Í viðtölum sem tekin voru kom fram að aðstandendur tala meðal annars um að þetta sé eini staðurinn þar sem frumbyggjar geta hist við jákvæðar kringumstæður. Allt starfsfólkið lærir Blackfoot sem er eitt af mörgum tungumálum frumbyggja og það algengasta hér um slóðir. Áhyggjur fólks snúa t.d. að því hvernig þessum börnum farnist þegar þau fara á næsta skólastig og að því hvort að húsnæðið þoli mikla fjölgun. Ég fékk að sitja í síðust kennslustund dagsins hjá 7 ára krökkunum og þau luku deginum á “smudge.” Þá er ein af lækningajurtunum þeirra, sem búið er að þurrka, tekin og búin til lítil kúla. Kúlan er sett í leirskál og kveikt í henni til að fá reyk. Skálin gengur síðan á milli nemenda þar sem allir taka reykinn í lófana, setja hann yfir sig, á augun til að sjá það fallega, á eyrun til að heyra góða hluti, á munninn til að tala fallega, á hendur og fætur og á staði sem þau finna til á. Að lokum er reykurinn settur á hjartað. Ég fékk að taka þátt og ég held svei mér þá að ég finni ekki lengur fyrir verk í bakinu! http://school.cbe.ab.ca/school/Niitsitapi/Pages/default.aspx Comments are closed.
|