Um verkefnið
Skólastjórafélag Íslands hefur gengið til samstarfs við Kennarasambandið í Alberta fylki í Kanada um skipti verkefni milli stjórnenda. Þetta verkefni hefur verið í gangi um nokkurt skeið milli Alberta fylkis og Ástralíu, Spánar og Þýskalands en verður prófað í fyrsta skipti á Íslandi skólaárið 2018-2019. Íslensku þátttakendurnir verða í Kanada tímabilið 25. september til 5. október 2018 og Kanadísku skólastjórarnir koma til Íslands 22. mars til 3. apríl 2019.
Verkefnið sem er gagnkvæmt, felur það í sér að skólastjórnendur á Íslandi fá tækifæri til að fylgja eftir skólastjórnanda í Kanada í 10 daga og öfugt. Íslenski skólastjórnandinn fylgir eftir þeim kandadíska í 10 daga að hausti, gistir á heimili viðkomandi og fylgir honum eftir í vinnu þann tíma sem um ræðir. Á sama hátt hýsir íslenski skólastjórnandinn þann kandadíska, sem fylgir honum eftir í starfi á Íslandi um tveggja vikna skeið á vorönn. Einnig er gert ráð fyrir að á dvalartímanum kynnist báðir aðilar menningu og landi viðkomandi.
Stefnt er að því að skólaárið 2019 – 2020 verði bæði skólastjórnendum og kennurum á íslandi boðið að nýta sér þetta tækifæri. Skipti sem þessi bjóða upp á einstakt tækifæri til að kynnast og bera saman mismunandi skólakerfi, gæði og skipulag skólastarfs í ólíku landi, nám án aðgreiningar og margt fleira. Þá gefst tækifæri til að kynnast vel viðkomandi svæði og skapa hugsanleg tengsl milli skóla til lengri framtíðar.
Umsóknarferli
Kennarasamband Íslands auglýsir eftir umsóknum frá félagsmönnum sínum. Á sama tima sendir kennarasambandið í Alberta út svipuð boð til sinna félagsmanna. Það sem umsækjendur þurfa að hafa í huga er t.d.:

- Krafist er góðrar enskukunnáttu.
- Umsækjendur þurfa að búa yfir sveigjanleika, góðri aðlögunarhæfni og fjölmenningarlegum áhuga.
- Umsækjendur þurfa að búa yfir leiðtoga- og samskiptahæfni, frumkvæði og félagslegum styrk.