Brynhildur í Charles Spencer High School skrifar:
Það eru margar gerðir af stólum í skólanum. Í hverri stofu eru margar gerðir af stólum fyrir nemendur. Stólar á fjórum fótum, stólar sem rugga, kollar sem rugga, æfingaboltar, háir stólar og lágir með borðum í samstilltri hæð. Sumir kennarar eru með sófa eða lítinn setkrók í stofunni hjá sér. Það er merkilegt að sjá hvernig nemendur nýta sér þetta. Þeir skiptast á stólum og færa sig um rýmin eftir því hvernig verkefni þeir eru að vinna. Það er að segja, hjá kennurum sem leyfa þetta. Það eru líka stofur hérna sem eru frekar stífar og kuldalegar og kennarinn er þá yfirleitt í stíl. Skólinn notar PowerTeacher til að skrá ástundun og námsmat. Ég hef ekki náð að skoða tækið nóg til að geta borið það saman við Mentor, Innu eða Námfús. En stjórnendur eru ánægðir með sinn hluta. Þar lesa þeir yfir ástundunarskráningu og eru fljótir að sjá stöðuna hjá þeim hundruðum unglinga sem hver aðstoðarskólastjóri hefur eftirlit með. Tölvukosturinn er fjölbreyttur. Ipad, fartölvur og chromebook eru á víð og dreif út um allan skóla, bekkjarsett af borðtölvum í kennslustofu við bókasafn skólans. Chromebook vélarnar eru langsýnilegastar í starfinu í kennslustofunum og allir kennarar sem ég hef litið inn til setja vinnu nemenda upp á Google Classroom. Ég hef ekki séð neina ókosti við þetta fyrirkomulag. En Melanie orðaði að hún hefði áhyggjur af því að Classroom gerði nemendum auðveldara að hanga heima. Þeir nemendur sem mæta illa eru farnir að afsaka sig með því að þeir geti unnið öll verkefni heima, allar upplýsingar og verkefnin liggi inni í Classroom. Það fannst mér athyglisvert sjónarmið en get samt ekki séð að það sé Google að kenna að þessir krakkar mæta ekki í skólann, og Melanie var svo sem alls ekki að segja það.
Comments are closed.
|