Arnbjörg í Marlborough skólanum skrifar.
Á fimmtudaginn fékk ég að heimsækja Nelson Mandela skólann, einn nýjasta “High School” í Calgary. Hann er ólíkur flestum hefðbundnum skólum og það er ekki bara flugverkstæðið með þyrlu og flughermum, fullkomna eldhúsið þar sem nemendur elda og baka það sem selt í er veitingasölunni, ljósmyndastúdíóin heldur er það andrúmsloftið og samskiptin. Það er erfitt að ímynda sér að það séu 1800 nemendur í skólanum, mér fannst eins og það væru um það bil 300 nemendur. Stjórnandinn sem fylgdi okkur um heilsaði öllum nemendum með nafni og grínaðist og tók nokkur dansspor með nemendum. Á göngunum voru nemendur að æfa dansa, spila á hljóðfæri, hanna föt eða bara spjalla. Í hefðbundnum skólum er algengast að grunnfögin (bóklegu) séu kennd í lotum. Kannski stærðfræði og enska fyrir áramót og samfélagsfræði og vísindi eftir áramót. Í Nelson Mandela ákváðu kennarar og stjórnendur að fara aðra leið, meðal annars til að minnka brottfall. Heilmikið brott fall er úr “High School” í Kanada og telja þeir að megin ástæðan sé þessi lotuskipting. Ef nemendur veikjast eða eitthvað kemur fyrir missa þeir kannski af hálfri önninni í þessum greinum og falla eða fara að ströggla og hætta í skóla. Brottfall í NM skólanum er mjög lágt. Haldið er mjög vel utan um 10. bekkingana (yngsti bekkurinn í High School) og lögð mikil áhersla á að þeim finnist þeir ná árangri og að þeir fái að prófa nýja hluti. Kennararnir sem kenna 10. bekk vinna náið saman og þekkja allir alla nemendurna vel. Heimastofurnar þeirra eru allar á sama svæði kennararnir hafa vinnuaðstöðu þar. Þeir geta því talað um styrkleika þeirra og hjálpað þeim að ná árangri. Ef einhver nemandi virðist vera að fara út af sporinu er gripið inn í strax. Þegar nemendur fara í 11. og 12. bekk geta þeir valið meira hvað þeir gera. Í einni af stofunum sem ég fór inn í voru ungar verðandi mæður að læra að annast ungbörn. Textinn á myndinni hér að neðan er uppi á veggs í rýminu sem tilheyrir 10. bekk. http://school.cbe.ab.ca/school/nelsonmandela/Pages/default.aspx Seinni partinn fóru Aubrey og Jody (aðstoðarskólastj.) með mig á listnámskeið þó að ég væri búin að segja Aubrey að mér yrði visað tafarlaust út úr Kanada ef hún gerði það! Ég valdi að taka þetta ekki sem einhver skilaboð! En hún valdi tíma þar sem allir gerðu það sama og mjög nákvæmar leiðbeiningar, næstum eins og að mála eftir númerum :) Fyrir utan að framleiða þessi stórkostlegu listaverk hlógum við mest allan tímann og skemmtum okkur vel! Comments are closed.
|