Brynhildur Sigurðardóttir í Charles Spencer High School skrifar: Fólkið í CSHS kallar stundum "we are the Mavericks" sem hvatningu þegar á þarf að halda. Maverick er líklega best að þýða sem frumkvöðull og það á mjög vel við um verkefni Maverick Movement (MM) sem Shay, einn af ungu sérkennurunum við skólann, setti á laggirnar fyrir nokkrum árum. MM er klúbbur í skólanum sem vinnur að góðgerðarstörfum af ýmsu tagi. Ég hitti klúbbinn í hádeginu á miðvikudaginn var, í aðstöðu sérkennaranna í CSHS. Stofan var full af krökkum, það kom starfsfólki á óvart hversu mikil endurnýjun varð í hópnum í haust því í fyrra var þetta klúbbur með 5-10 krökkum. Þegar ég kom inn á fundinn var Shay uppi við töflu að rifja upp með hópnum þau grundvallarhugtök sem starf klúbbsins byggir á: sjálfbærni, jöfnuður og félagslegt réttlæti. Klúbburinn berst gegn fátækt í veröldinni og áhersla er lögð á að sú barátta sé unnin þannig að fólk og samfélög séu byggð upp til sjálfsbjargar og sjálfbærni. Shay útskýrði fyrir hópnum og spurði: Ef við viljum hjálpa fátækri manneskju, ekki gefa henni pening. Það má vel vera að hún nýti peningana vel, en hvað þegar þeir klárast, hvað á hún þá að gera? Þá verðum við að gefa henni meiri pening. Hvernig getum við hjálpað manneskjunni svo að hún geti hjálpað sér sjálf?
Comments are closed.
|